Kampavín Brad Pitt er uppselt

Brad Pitt er að gera það gott með kampavínsbúgarðinn sinn …
Brad Pitt er að gera það gott með kampavínsbúgarðinn sinn í Frakklandi. Mbl.is/Fleur de Mirival Champagne

Hollywood­leik­ar­inn er ekki bara mynd­ar­leg­ur, held­ur er hann einnig eig­andi að kampa­víns­búg­arði í Frakklandi – sem ger­ir það gott.

 The Pier­re Peters Champagne, er staðsett í litlu þorpi í franskri sveit, þar sem kampa­vínið er bruggað í kjall­ara sem ný­verið hef­ur fengið yf­ir­haln­ingu – en Brad keypti búg­arðinn árið 2012 og hef­ur síðan þá breytt þrúg­um í töfra í flösku. Brad hef­ur reynt að mæta eft­ir­spurn neyt­and­ans með kampa­vín í rósa-stíl og með vín­inu, Fle­ur de Mira­val, hef­ur hann náð at­hygli víðs veg­ar um heim­inn. Alls var fyr­ir­hugað að fram­leiða 20 þúsund flösk­ur í októ­ber sem nú þegar eru upp­seld­ar, þá að mestu leyti til hágæðaveit­inga­húsa og -hót­ela. En gott vín sprett­ur ekki upp á einni nóttu, því kampa­vín krefst þol­in­mæði, rétts jarðvegs, góðs veðurs og ástríðu –  þess vegna var verk­efnið, Fle­ur de Mira­val‘, ekki kynnt til leiks í rúm fimm ár.

 Nýi kjall­ar­inn mun einnig færa okk­ur nýtt kampa­vín, því með haust­inu kem­ur nýtt vín á markaðinn að nafni ER3. Vínið er nán­ast kop­ar­litað með ör­lítl­um rós­ar­keim sem mun gleðja augað er vín­inu er hellt í glasið.

Mbl.is/​Fle­ur de Miri­val Champagne
Mbl.is/​Peter Mikel­bank
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert