Sjónvarpskokkur hannar uppþvottlög

Nýr uppþvottalögur sem fer vel með húðina og ilmar vel.
Nýr uppþvottalögur sem fer vel með húðina og ilmar vel. Mbl.is/Zone

Ef það er ein­hver sem ætti að vera með kröf­ur á uppþvotta­lög í eld­hús­inu, þá er það viðkom­andi aðili sem stend­ur hvað oft­ast á bak við pott­ana. Og þessi sápa hér er víst sér­hönnuð af mat­reiðslu­manni.

Danski fram­leiðand­inn Zone, hef­ur löngu stimplað sig inn með smá­vör­ur til heim­il­is­ins og þar á meðal í eld­húsið. Ný­verið fengu þeir kokk­inn Adam Aamann sem sést títt í sjón­varp­inu þar ytra, til að hanna uppþvotta­lög sem tikk­ar í öll box – og út­kom­an er þessi. Zone Bot­anical Scents, inni­held­ur ein­ung­is nátt­úru­leg hrá­efni sem eru mild fyr­ir hend­urn­ar, ásamt app­el­sínu­olíu sem leys­ir fitu á áhrifa­rík­an hátt.

Tveir ilm­ir eru í boði eða Lemon Launch sem er fersk­ur og hreinn með sítr­ónu­myntu, sítr­ónu, app­el­sínu og bergamot - og hinn kall­ast Orange Of­fen­se. Þess má geta að all­ar vör­urn­ar eru fram­leidd­ar í Dan­mörku sam­kvæmt GMP staðli, þar sem sáp­urn­ar eru laus­ar við allt um­hverfiseit­ur, ör­ver­ur og önn­ur skaðleg efni. Sáp­urn­ar má meðal ann­ars finna HÉR.

Mbl.is/​Zone
Mbl.is/​Zone
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert