Svona gerir þú alvöru bragðaref heima hjá þér

Ljósmynd/María Gomez

Bragðaref­ur er mögu­lega það allra vin­sæl­asta í ís­lensk­um ísbúðum og ef það er eitt­hvað sem meist­ari María Gomez á Paz.is er snill­ing­ur í þá er það að búa til upp­skrift­ir sem eru nán­ast al­veg eins og fyr­ir­mynd­in.

„Ég elska bragðaref og hef gert síðan hann leit fyrst dags­ins ljós í ísbúðum lands­ins. Ég verð þó að viður­kenna að það að fara með fjöl­skyld­una í ísbúðina er orðið ansi dýrt sport ef um stóra fjöl­skyldu er að ræða. Því hef ég gert bragðarref heima í fjölda ára og hann bragðast al­veg eins og úr ísbúðinni,“ seg­ir María um þessa geggjuðu upp­skrift og bæt­ir við að það eina sem þurfi til að gera ís­inn sé hræri­vél eða bland­ari, jafn­vel mat­vinnslu­vél, skál og sleikja.

Svona gerir þú alvöru bragðaref heima hjá þér

Vista Prenta

Bragðaref­ur sem bragð er af

  • 2 lítr­ar vanilluís (ég notaði Bón­us ís en mér finnst hann ekki eins rjóma­kennd­ur og ann­ar ís og því verður bragðaref­ur­inn fersk­ari, nota líka oft Vest­ur­bæja­rís­inn gamla ef ég vil hafa hann enn fersk­ari)
  • 250 g fersk jarðarber (verða að vera fersk, alls ekki fros­in)
  • 130 g San­bó pip­ar­kúl­ur
  • 130 g San­bo þrista­kúl­ur eða þrist­ar 
  • 5 stk. kókós­boll­ur
  • Svo má setja allskyns annað sem hug­ur­inn girn­ist en ég elska að setja lakk­rís­kon­fekt frá San­bó, því hann helst mjúk­ur í köld­um ísn­um 

Aðferð

  1. Látið ís­inn standa í smá stund upp á borði svo hann mýk­ist ögn
  2. Skerið jarðaber­in smátt niður á meðan ásamt sæl­gæt­inu
  3. Setjið svo ís­inn og jarðaber­in sam­an í hræri­vél eða hin tæk­in sem ég nefni að ofan og hafið í gangi í ör­sutta stund eða bara þar til jarðaber­in eru rétt svo blönduð sam­an við
  4. Ef þið gerið í hræri­vél með T-inu setjið þá næst nammið út í skál­ina og hrærið létt sam­an en ekki of mikið svo ís­inn verði ekki of lin­ur
  5. Ef þið notið mat­vinnslu­vél eða bland­ara er betra að setja ís­inn eft­ir að hon­um er blandað sam­an við jarðaber­in í skál og hræra namm­inu sam­an við með sleikju
  6. Setjið svo bragðaref­inn út í 2 lítra ís­boxið og lokið box­inu
  7. Kælið í fryst­ir í eins og 30-60 mín­út­ur þá verður hann stíf­ur og kald­ur
  8. Geymið svo rest ef verður eft­ir í ís­box­inu áfram í fryst­in­um
Ljós­mynd/​María Gomez
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert