Klassískt carbonara-pasta með eðalbeikoni

Ljósmynd/Linda Ben

Nú fer að bresta á með haust­lægðunum og öll­um þeim unaðslegu kós­í­kvöld­um sem þeim fylgja. Þá er fátt betra en að gæða sér á góðum mat og ekki spill­ir fyr­ir ef hann er löðrandi í par­mesanosti og bei­koni. Hér erum við með upp­skrift að dýr­ind­is car­bon­ara-pasta frá Lindu Ben þar sem hún not­ar eðal­bei­kon og heilt fjall af par­mes­an. Rétt­ur sem get­ur hrein­lega ekki klikkað.

Klass­ískt car­bon­ara-pasta með eðal­bei­koni

Vista Prenta

Klass­ískt car­bon­ara-pasta með eðal­bei­koni

  • 450 g taglia­telle frá Barilla
  • 130 g eðal­bei­kon frá SS
  • 50 g smjör
  • 3 hvít­lauks­geir­ar
  • 4 egg
  • 150 g rif­inn par­mes­an (+ meira til að setja yfir pastað þegar það er til­búið)
  • salt og pip­ar
  • fersk basilíka
Aðferð:
  1. Setjið vatn í stór­an pott og náið upp suðunni.
  2. Skerið bei­konið í bita og steikið á pönnu þar til það er eldað í gegn og byrjað að brún­ast ör­lítið.
  3. Setjið salt og pasta í sjóðandi vatnið og sjóðið í 6 mín. eða þar til það er nán­ast al­veg soðið en ennþá smá bit í því.
  4. Bætið þá smjör­inu út á pönn­una, merjið hvít­lauks­geir­ana með hníf svo þeir opn­ist og bætið á pönn­una, leyfið þessu að malla í svo­litla stund þannig að bragðið úr hvít­laukn­um fari í smjörið og bei­konið.
  5. Setjið egg­in í skál og hrærið sam­an.
  6. Rífið par­mes­an­inn niður og bætið út í egg­in ásamt salti og pip­ar.
  7. Þegar pastað er til­búið takið þá hvít­lauk­inn upp úr pönn­unni, slökkvið á hit­an­um und­ir og bætið past­anu út á pönn­una, hrærið sam­an.
  8. Hellið eggja­blönd­unni út á pastað og hrærið strax sam­an, eggja­bland­an á að þykkna aðeins en ekki verða kekkj­ótt. Bætið við pasta­vatni, u.þ.b. 2 msk í einu, og hrærið sam­an við ef sós­an er of þykk.
  9. Berið fram með meira af par­mes­an, pip­ar og fersku basil.
Ljós­mynd/​Linda Ben
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert