Snoop Dogg með nýtt morgunkorn á markað

Snoop Dogg
Snoop Dogg AFP

Fræg­ir lista­menn þarna úti eru alls ekki við eina fjöl­ina felld­ir – en rapp­ar­inn Snoop Dogg var að senda frá sér morgun­korn í lit­rík­ari kant­in­um. Nýja morgun­kornið kall­ast ’Snoop Loopz’ og er fyrsta var­an sem Broadus Foods send­ir frá sér en það er nýtt morgun­korna­fyr­ir­tæki sem Snoop stofnaði ásamt rapp­ar­an­um Master P.

Snoop Loopz er glút­ein­laust og inni­held­ur D-víta­mín sem og heil­korn. Það sem er áber­andi á pakkn­ing­inni er lítið blátt hundalukku­dýr, íklætt körfu­boltatreyju í Los Ang­eles Lakers lit­un­um og held­ur á körfu­bolta. Það sem þykir þó fal­legt við nýja vörumerkið er að þeir sem versla vör­ur frá Broadus Foods, styðja um leið kristi­lega sjálf­seign­ar­stofn­un í Pasa­dena er kall­ast ’Door Of hope’ en stofn­un­in veit­ir fjöl­skyld­um og ein­stæðum for­eldr­um, þak yfir höfuðið í erfiðum aðstæðum.

Nýtt morgunkorn frá rapparanum Snoop Dogg.
Nýtt morgun­korn frá rapp­ar­an­um Snoop Dogg. mbl.is/​Broadus Foods
mbl.is/​Broadus Foods
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert