Nýjum hugmyndum hellt í glas

Nýr kokteilaseðill er mættur á Geysi.
Nýr kokteilaseðill er mættur á Geysi. mbl.is/Hótel Geysir

Við fögn­um alltaf nýj­ung­um og ný­verið bætti Hót­el Geys­ir í Hauka­dal við sig úr­val af nýj­um teg­und­um af kokteil­um sem sög­ur fara af.

mbl.is/​Hót­el Geys­ir

Þannig vildi til að tveir barþjón­ar á staðnum sett­ust á skóla­bekk og mættu til leiks full­ir af inn­blæstri og hug­mynd­um sem hafa verið sett­ar í glas og fást nú á nýj­um drykkjarmat­seðli hót­els­ins.

Við sett­um okk­ur í sam­band við El­ínu Svöfu Thorodd­sen, sem er ein af eig­end­um ferðaþjón­ust­unn­ar á Geysi og spurðum nán­ar út í seðil­inn. „Við höf­um bætt við fjölda kokteila og aukið úr­valið til muna“, seg­ir Elín Svafa. „Ég er með einn per­sónu­leg­an kokteil á seðli sem kallst ‚Dirty Elín‘, og mæli heils­hug­ar með að smakka hann - en drykk­ur­inn inni­held­ur Tanqu­eray gin, lime, blá­berjasíróp og prosecco. Yfir sum­arið á heit­um dög­um eru spritz­arn­ir vin­sæl­ir, eins Mules, Sours og Gimlets – þá sem for­drykk­ir fyr­ir mat. Ég per­sónu­lega mæli einnig með Mart­ini eft­ir mat­inn, en það er einn sem er ótrú­lega spenn­andi og kall­ast ‚Sweet Glacier‘ – eða Jökla­lí­kjör, Kahlúa, Lar­sen koní­ak og súkkulaðibitter,“ seg­ir Elín Svafa að lok­um en ljóst er að kokteila­menn­ing lands­ins er öfl­ug og sí­fellt er að bæta í.

mbl.is/​Hót­el Geys­ir
mbl.is/​Hót­el Geys­ir
mbl.is/​Hót­el Geys­ir
mbl.is/​Hót­el Geys­ir
Elín Svafa Thoroddsen.
Elín Svafa Thorodd­sen. mbl.is/​Saga Sig
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert