Þetta eru flottustu barstólar landsins

Við kíktum á búðarrölt á netinu og tókum út nokkra flotta barstóla. En þeir eru margir stólarnir sem fást í verslunum bæjarins og hver öðrum flottari eins og sjá má hér fyrir neðan.

Bólstrað bak og tágarútlit er einkennandi fyrir þennan barstól sem fæst HÉR.

Masters stóllinn eftir þá Philippe Starck og Eugeni Quitlet hefur hlotið mörg virt verðlaun eins og Good Design Award 2010 og Reddot Design Award 2013. Stóllinn er fáanlegur HÉR.

Cabin Counter barstóll með sandlituðu leðri frá Vipp – einstaklega fallegur stóll og fæst HÉR.



Barstóll með svörtu gervileðri og svarta stálfætur – stílhreinn og þægilegur. Fáanlegur HÉR.

BERGMUND frá Ikea er með baki sem styður vel við hrygginn. Stólgrindin fæst í svörtu og hvítu – og hægt er að taka áklæðið af.

Torii barstóll hannaður af A. Kleene & G. Assmann fyrir Bensen – fæst HÉR.

Fantaflottir barstólar!
Fantaflottir barstólar! mbl.is/Rumfatalagerinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert