Drykkurinn sem Kris Jenner drekkur til að halda sér gangandi

Kris Jenner kann vel að meta kaldan Martini drykk í …
Kris Jenner kann vel að meta kaldan Martini drykk í glasið. mbl.is/AFP

Ef þið veltið því fyr­ir ykk­ur hvað raun­veru­leika­stjarn­an og marg­milj­óna­mær­ing­ur­inn Kris Jenner, drekk­ur sér til yndis­auka á dag­inn - þá er það þessi drykk­ur hér. 

Sam­kvæmt nýju TikT­ok mynd­bandi sem Kris tók upp með dótt­ur sinni Kylie, þá kýs hún 'D­irty Mart­in­i' í glasið sitt. Og ef þú vilt taka upp venj­ur mæðgn­anna, þá mæla þær með að eiga kokteil hris­st­ara, Bel­ved­ere vod­ka og tvær ólíf­ur. Eins er mik­il­vægt að vera með rétta glasið í verkið og muna að hafa vod­k­an vel kald­an. Ekki skemm­ir fyr­ir að kæla glasið áður en drykkn­um er hellt í, það ger­ir svo sann­ar­lega gæfumun­inn í loka­út­kom­unni. 

Mæðgurnar blanda sér drykki í eldhúsinu.
Mæðgurn­ar blanda sér drykki í eld­hús­inu. mbl.is/​TikT­ok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert