Leyndarmálið á bak við fullkominn kaffibolla

Best geymdu kaffi leyndarmálin.
Best geymdu kaffi leyndarmálin. mbl.is/iStock

Hér koma öll bestu ráðin er varðar kaffi - þá bæði holl­ráð og leynd­ar­mál, svo ekki sé minna sagt.

  • Ekki geyma kaffi­baun­irn­ar í frysti, láttu þær frek­ar í loft­tæmt ílát. 
  • Búðu til þitt eigið sýróp, kannski með vanillu eða kara­mellu­bragði - það mun bæta kaffið til muna. 
  • Settu kanil út í kaffið til að fá tvist á bragðið. Eins er engi­fer eða kar­dimomm­ur líka góðar út í baun­irn­ar. 
  • Rjómi út á kaffið er æðis­leg­ur! Blandaðu smá­veg­is af vanillu og jafn­vel sykri út í, og rjóm­inn verður unaðsleg­ur. 
  • Búðu til ís­mola úr kaffi, þá áttu alltaf til kaffiklaka þegar þig þyrst­ir í ískaffi. Eins get­ur þú gert ís­mola úr mjólk sem eru upp­lagðir út í kaffið. 
  • Helltu mjólk í glas með loki og hristu vel. Settu síðan glasið inn í ör­bylgju­ofn í 30 sek­únd­ur og þú færð hina full­komnu froðumjólk út á kaffið. 
  • Til að boll­inn haldi kaff­inu þínu heitu og góðu, þá er ráð að setja sjóðandi heitt vatn í boll­ann og hella því síðan úr - þannig hef­ur þú hitað boll­ann sem tek­ur á móti heitu kaff­inu. 
  • Síðast en ekki síst er nauðsyn­legt að næla sér í flott ferðamál sem þú get­ur tekið með þér í vinn­una eða á ferðina. 
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert