Svona mýkir þú smjör á augabragði

Það finnast ýmsar aðferðir til að mýkja upp smjör.
Það finnast ýmsar aðferðir til að mýkja upp smjör. mbl.is/

Hér er lausn­in við því hvernig við mýkj­um upp smjörklump á auga­bragði. En það get­ur verið hvim­leitt að ætla sér að baka eitt­hvað gott þar sem smjörið er tekið kalt og hart beint úr kæli. Við höf­um áður sagt frá aðferðum sem eiga að svín­virka, en þessi hér slær öllu öðru við.

Það eina sem þú þarft að gera er að taka smjörið úr kæli og leggja það á borðið. Haltu smjör­inu í pakkn­ing­un­um og dragðu fram hár­blás­ar­ann. Byrjaðu á því að hita smjörið ró­lega með því að nota ekki of háa still­ingu – og klump­ur­inn mun mýkj­ast upp á auga­bragði. Við sáum þessa stór­sniðugu aðferð hjá 'Fou­depat­iss­erie' á In­sta­gram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert