Unaðslegt pasta að hætti Jamies Olivers

Risarækjupasta sem gælir við bragðlaukana.
Risarækjupasta sem gælir við bragðlaukana. mbl.is/Jamie Oliver

Ris­arækjup­asta sem gælir við bragðlauk­ana er mætt á borðið  hér baðað upp úr léttu rósa­víni. Það er eng­inn ann­ar en meist­ari Jamie Oli­ver sem á heiður­inn af upp­skrift­inni og þá vit­um við að hún get­ur ekki klikkað.

Unaðslegt pasta að hætti Jamies Olivers

Vista Prenta

Ris­arækjup­asta upp á tíu

  • 300 g ris­arækj­ur
  • 4 hvít­lauksrif
  • 2 kúfaðar te­skeiðar af rauðu pestói
  • 150 g tagler­ini-pasta
  • 150 ml létt rósa­vín

Aðferð:

  1. Setjið rækj­urn­ar á stóra pönnu ásamt 1 msk. af ólífu­olíu. 
  2. Afhýðið og skerið hvít­lauk­inn smátt. Setjið pönn­una á meðal­há­an hita og blandið hvít­lauk og rækj­um sam­an við. Því næst kem­ur pestóið sam­an við og öllu blandað sam­an. 
  3. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um. Hellið vatn­inu af en geymið um einn bolla af pasta­vatn­inu. 
  4. Hellið rósa­víni sam­an við rækj­urn­ar og látið sjóða í eina mín­útu. Bætið past­anu sam­an við og smakkið til með kryddi. Bætið ef til vill smá pasta­vatni sam­an við ef þörf er á. 

Upp­skrift: Jamie Oli­ver

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert