Svona ristar þú graskerskjarna

Ristaðir graskerskjarnar eru æðislegt snakk.
Ristaðir graskerskjarnar eru æðislegt snakk. mbl.is/Alamy

Þau eru mörg grasker­in sem skor­in eru út hér á landi og fyrst við erum í þessu brasi, þá er al­veg eins gott að nýta allt sem hægt er úr grasker­inu sjálfu - eins og t.d. kjarn­ana sem eru æðis­legt snakk eft­ir að hafa ristað þá. 

Svona ristar þú graskerskjarna

Vista Prenta

 Ristaðir grasker­skjarn­ar

  • Grasker­skjarn­ar úr fersku graskeri
  • Salt
  • Rap­sol­ía
  • Vatn

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 160 gráður.
  2. Skrapið kjarn­ana úr grasker­inu og hreinsið allt frá kjörn­un­um sjálf­um. 
  3. Leggið kjarn­ana í pott og hellið ofan í, svo það fljóti yfir. Setjið smá­veg­is af salti í vatnið og látið sjóða í 20 mín­út­ur.
  4. Hellið vatn­inu af og leggið kjarn­ana á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu. 
  5. Dreypið ol­í­unni yfir kjarn­ana og stráið salti yfir. Ristið í ofni í 30 mín­út­ur. Veltið kjörn­un­um á tíu mín­útna fresti. 
  6. Kjarn­arn­ir eru til­bú­in­ir þegar þeir eru stökk­ir í sér. Stráið ör­lítið meira salti yfir ef vill. 
  7. Látið al­veg kólna og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert