Kakan sem fær drauma þína til að rætast

Eplakaka sem fær drauma þína til að rætast.
Eplakaka sem fær drauma þína til að rætast. mbl.is/Diliara Garifullina

Við get­um næst­um full­yrt að þessi eplakaka sé ein sú besta sem þú hef­ur smakkað. Upp­skrift­in er ein­föld og er draumi lík­ast svo ekki sé minna sagt. 

Kakan sem fær drauma þína til að rætast

Vista Prenta

Eplakaka drauma þinna

  • 2 egg
  • 200 g syk­ur
  • 100 g smjör
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • 1 msk. vanillu­syk­ur
  • 1 epli
  • 20 cm bök­un­ar­form

Ofan á:

  • 2 epli
  • 1 msk. kanill
  • 2 msk. syk­ur

Bera fram með:

  • Vanilluís, sýrðum rjóma eða grískri jóg­úrt

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 180 gráður. Þeytið egg og syk­ur þar til bland­an verður létt í sér. 
  2. Bræðið smjörið í litl­um potti við væg­an hita og látið kólna aðeins áður en eggja­bland­an er hrærð út í. Blandið sam­an hveiti, lyfti­dufti og vanillu­sykri og sigtið út í deigið. Hrærið vel með skeið þar til deigið er jafn og slétt. 
  3. Afhýðið 1 epli og skerið í litla ten­inga og blandað þeim sam­an við deigið með skeið. Smyrjið fomrið og hellið deig­inu í það. 

Ofan á:

Skerið epl­in í þunn­ar sneiðar og dreifið þeim þétt ofan á deigið. 

Blandið kanil og sykri sam­an og stráið jafnt yfir kök­una. Bakið í ofni í 35 mín­út­ur. 

Berið fram meðan kak­an er ennþá volg - þá með vanilluís eða öðru sem hug­ur­inn girn­ist. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert