Geggjaður pastaréttur sem tekur enga stund

Ljósmynd/María Gomez

„Cacio a pepe er rammít­alsk­ur spa­gettírétt­ur sem er venju­lega gerður með olíu, pecor­ino osti og pip­ar. Þessa út­gáfu eða svipaðri þess­ari sá ég hins veg­ar á Tik Tok og fannst hún bara meira djúsí og ákvað að gera mína eig­in út­gáfu af henni,“ seg­ir María Gomez um þessa ómót­stæðilegu upp­skrift.

„Þessi rétt­ur er afar ein­fald­ur og tek­ur enga stund að gera. Ég mæli með því að hafa hvít­lauks­brauð og ferskt sal­at með hon­um til að fá smá fersk­leika með smjör­bragðinu.“

Geggjaður pasta­rétt­ur sem tek­ur enga stund

Vista Prenta

Cacio a pepe með smá twisti eða spa­gettí með piparpecor­ino smjör­bollu

  • 300 gr spa­gettí frá De Cecco finnst mér best 
  • 150 gr mjúkt smjör 
  • 100 gr rif­inn pecor­ino ost­ur 
  • fullt af ný­möluðum svört­um pip­ar 

Aðferð

  1. Sjóðið spa­gettí eft­ir leiðbein­ing­um á pakka en munið að hafa vatnið vel salt, nán­ast eins og sjó­vatn
  2. Rífið niður pecor­ino ost­inn í rif­járni og hrærið út í mjúkt smjörið ásamt fullt af svört­um pip­ar, eft­ir smekk 
  3. Setjið smjörið í skál og setjið á borðið ásamt sjóðandi heitu spa­gettí
  4. Best er að bera fram spa­gettíið sjóðandi heitt og fá sér svo góða slettu af pip­arosta­smjör­inu út á og láta það bráðna yfir spa­gettíið, setja svo smá auka af ólifu­olíu og enn meiri rif­inn pecor­ino ost yfir 
  5. Ég mæli með því að hafa hvít­lauks­brauð og ferskt sal­at með til að fá smá fersk­leika með smjör­bragðinu
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert