Eggjapanna sem á engan sinn líka

Eggjapanna sem þú munt elska.
Eggjapanna sem þú munt elska. mbl.is/Getty

Bökuð egg hafa aldrei verið í jafn mikl­um glans­bún­ingi og nú  en hér er upp­skrift sem kem­ur veru­lega á óvart. Rétt­ur­inn kall­ast „shaks­huka“, sem sum­ir halda fram að eigi ræt­ur að rekja til Palestínu en aðrir telja hann norðurafrísk­an. Hvort sem er, þá er upp­skrift­in geggjuð og verður að smakk­ast. 

Eggjapanna sem á engan sinn líka

Vista Prenta

Eggjap­anna sem á eng­an sinn líka

  • 1/​2 msk. ólífu­olía
  • 1 lauk­ur, smátt saxaður
  • 500 g paprika (alll­ir lit­ir)
  • 4 hvít­lauksrif
  • 3 msk. kummín
  • 1 msk. paprikukrydd
  • 2 msk. tóm­at­púrra
  • 2 dós­ir af tómöt­um
  • 10 g smátt söxuð stein­selja 
  • 6 egg
  • 120 g feta­ost­ur
  • brauð til að bera fram með. 

Aðferð:

  1. Hitið olíu á stórri pönnu á meðal­hita. 
  2. Steikið lauk og papriku í 8-10 mín­út­ur og bætið þá hvít­lauk sam­an við, ásamt kryddi og tóm­at­púrru. Látið malla í 1 mín­útu. 
  3. Hellið tómöt­un­um sam­an við ásamt stein­selju og látið malla í 15 mín­út­ur. Bætið þá eggj­un­um sam­an við og látið eld­ast í 10 mín­út­ur með lokið á. 
  4. Dreifið ost­in­um yfir og berið fram með brauði. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert