Heinz kynnir bakaðar baunir á pítsu

Bakaðar baunir frá Heinz eru nú fáanlegar á pítsu.
Bakaðar baunir frá Heinz eru nú fáanlegar á pítsu. mbl.is/Heinz_Getty

Stórtíðindi fyr­ir aðdá­end­ur bakaðra bauna - því nú kynn­ir Heinz baun­irn­ar sín­ar á pítsu, svo ekki sé meira sagt. 

Ef þú hélt að an­an­as á pítsu væri glæp­ur, hvernig hljóm­ar þá að fá bakaðar baun­ir á bök­una þína? Því slíkt er nú fá­an­legt í versl­un­um þar ytra, þar á meðal í Ice­land í Bretlandi. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem Heinz kem­ur með slík­an glaðning á markað, því pítsurn­ar voru eitt sinn fá­an­leg­ar á ní­unda ára­tug og hættu í sölu árið 2003 eða fyr­ir rétt 19 árum síðan. Eins eru ham­borg­ar­ar vænt­an­leg­ir, fyllt­ar kart­öfl­ur og eitt­hvað meira af bauna­rétt­um ef marka má nýj­ustu frétt­ir frá fyr­ir­tæk­inu. 

mbl.is/​Elf­inAinu/​Reddit/​Heinz
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert