Diskurinn sem er að gera allt vitlaust

mbl.is/Normann Copenhagen

Hér ber að líta ósköp venju­leg­an disk myndu marg­ir segja - á meðan fag­ur­ker­ar í eld­hús­inu sjá mögu­leika í allt öðru. 

Mass Dish er nýj­ung frá Normann Copen­hagen, sem sitja aldrei auðum hönd­um er kem­ur að því að freista okk­ar með fal­leg­um vör­um. Disk­ur­inn er hring­laga úr gegn­heilu gleri og má nota und­ir hvað sem þér dett­ur í hug - und­ir sáp­una á baðher­berg­inu, skart­grip­ina þína eða eins og sæl­ker­ar sjá fyr­ir sér snakk og girni­lega eft­ir­rétti á diskn­um. „Glerklump­ur­inn“ er án efa augna­djásn sama hvernig hann er notaður. 

mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert