Fiskréttur sem smellpassar inn í vikuna

Æðislegur fiskréttur sem smellpassar inn í vikuna.
Æðislegur fiskréttur sem smellpassar inn í vikuna. mbl.is/Jamie Oliver

Virki­lega spenn­andi upp­skrift úr smiðju Jamies Oli­ver þar sem fisk­ur er í aðal­hlut­verki í bland við skemmti­legt meðlæti. Kúskús er van­metið meðlæti að okk­ar mati en hér leik­ur það stórt hlut­verk og við skor­um á ykk­ur að prófa.

Fiskréttur sem smellpassar inn í vikuna

Vista Prenta

Fisk­rétt­ur sem smellpass­ar inn í vik­una

  • 150 g kúskus
  • 4 hvít­lauksrif
  • Ólífu­olía
  • 250 g þroskaðir kirsu­berjatóm­at­ar
  • 250 g asp­as
  • 2 kúfaðar te­skeiðar rose harissa
  • 2 x 150 g fiski­flök
  • 1 sítr­óna
  • 2 msk. hrein jóg­úrt

Aðferð:

  1. Setjið kúskus í skál og bætið klípu af sjáv­ar­salti og svört­um pip­ar út í. Sjóðið vatn og hellið yfir sam­kvæmt leiðbein­ing­um. 
  2. Afhýðið og skerið hvít­lauk­inn í sneiðar - setjið á pönnu á meðal­hita ásamt 1 msk. af olífu­olíu. Bætið tómöt­un­um á pönn­una. Skerið asp­asinn niður og setjið á pönn­una - kryddið allt með salti og pip­ar. 
  3. Nuddið haris­samauk­inu yfir fisk­inn og leggið ofan á græn­metið. Raspið sítr­ónu­börk­inn yfir og kreistið helm­ingn­um af sítr­ónusaf­an­um yfir. Bætið við 150 ml af vatni, setjið lok á og eldið í 5 mín­út­ur - eða þar til fisk­ur­inn er eldaður í gegn. 
  4. Hrærið aðeins upp í kúskús­inu. Blandið smá­veg­is af harissa sam­an við jóg­úrt­ina og hellið yfir fisk­inn og kúskúsið. Berið fram með sítr­ónu­bát­um til að kreista yfir. 

Upp­skrift: Jamie Oli­ver

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert