Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

mbl.is/Linda Ben

„Hér höf­um við ein­stak­lega gott heima­gert granóla með ristuðum möndl­um og kó­kos­flög­um. Það er stökkt og bragðgott, inni­held­ur al­veg fullt af hnet­um og fræj­um sem eru holl fyr­ir okk­ur. Það inni­held­ur aðeins einn dl hlyns­íróp sem verður að telj­ast nokkuð lítið miðað við að margt keypt granóla inni­held­ur tals­vert meiri syk­ur. Ristuðu kó­kos­flög­urn­ar og möndl­urn­ar gera það nefni­lega sætt og bragðgott frá nátt­úr­unn­ar hendi,“ seg­ir Linda Ben um þetta dýr­ind­is granóla sem er upp­lagt að gera.

„Ég elska þetta granóla til dæm­is með skyri. Ég hef verið að borða veg­an­skyrið frá Veru Örnu­dótt­ur und­an­farið og lík­ar það mjög vel! Það er bragðgott, inni­held­ur lít­inn viðbætt­an syk­ur og er pró­tín­ríkt. Það er að sjálf­sögðu veg­an eins og aðrar vör­ur frá Veru.“

Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

Vista Prenta

Heima­gert granóla með ristuðum möndl­um og kó­kos­flög­um

  • 500 g hafr­ar
  • 100 g möndl­ur
  • 80 g val­hnet­ur
  • 50 g hör­fræ
  • 100 g ristaðar kó­kos­flög­ur
  • 1/​4 tsk kanill
  • 100 g kó­kosol­ía
  • 1 dl hlyns­íróp

Borið fram með

  • blá­berja­hafra­skyri frá Veru Örnu­dótt­ur
  • blá­berj­um

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 180°C.
  2. Saxið möndl­urn­ar og val­hnet­urn­ar gróft.
  3. Setjið hafra, söxuðu möndl­urn­ar, val­hnet­urn­ar, hör­fræ og kó­kos­flög­ur í skál, setjið ör­lítið af kanil yfir. Blandið öllu vel sam­an.
  4. Bræðið kó­kosol­í­una og hellið yfir ásamt hlyns­írópi, blandið öllu vel sam­an.
  5. Setjið smjörpapp­ír á ofnskúffu og hellið blönd­unni á smjörpapp­ír­inn. Takið stór­an spaða og pressið blönd­una þétt niður. Bakið í ofni í u.þ.b. 20 mín. eða þar til bland­an byrj­ar að verða gull­in­brún að lit.
  6. Leyfið blönd­unni að kólna al­veg í ofnskúff­unni að stofu­hita. Takið svo spaða og brjótið granólað létt í sund­ur og setjið í ílát.
  7. Granólað geym­ist í lokuðu íláti í 2-3 vik­ur.
  8. Ég mæli með að bera granólað fram með blá­berja­hafra­skyri frá Veru Örnu­dótt­ur og fersk­um blá­berj­um.
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert