Nammið sem þú mátt gæða þér á í janúar

Súkkulaðihúðaðar döðlur eru algjört sælgæti.
Súkkulaðihúðaðar döðlur eru algjört sælgæti. mbl.is/Jana

Hér bjóðum við upp á nart­bita sem stela ekki af þér mitt­is­mál­inu. Það er gott að eiga slíkt í kæli er sæta tönn­in byrj­ar að kvarta. Upp­skrift­in kem­ur frá Jönu, sem seg­ir að hér séu mol­ar í holl­ari kant­in­um, en engu að síður af­bragðsgóðir.

Nammið sem þú mátt gæða þér á í janúar

Vista Prenta

Nammið sem þú mátt gæða þér á í janú­ar

  • 10 fersk­ar döðlur (me­djool)
  • 20 stykki pek­an­hnet­ur
  • 100 g gott dökkt súkkulaði 
  • smá gróft salt

Aðferð:

  1. Skerið döðlurn­ar í tvennt og takið stein­inn úr.
  2. Setjið í fat eða á bök­un­ar­papp­ír á stór­an disk.
  3. Setjið eina pek­an­hnetu í hverja döðlu (færð 20 stk.).
  4. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
  5. Dreifið fljót­andi heitu súkkulaðinu yfir döðlubit­ana og stráið því næst smá salti yfir hvern bita.
  6. Setjið inn í ís­skáp og kælið, geym­ist í nokkra daga í ís­skáp ef þeir verða ekki bara kláraðir um leið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert