Það hljómar vel að fara með besta vini sínum á kaffihús, og það er hægt á nýju kaffihúsi í London.
Pawsite Café er staðsett í Notting Hill og býður gestum upp á mat, drykki og afþreyingu - og þá fyrir hunda og eigendur þeirra. Hér er má finna leikstöðvar sem örva káta hunda og afslappandi rými fyrir þá sem vilja slökun. Umhverfið er í raun hannað til að örva oxytósínið - eða hormónið sem losnar um í líkamanum er fólk umgengst hunda. Innréttingarnar á staðnum eru hannaðar með Feng Shui í huga, allt til að efla góðar tilfinningar um ró og hamingju. Hér eru einnig viðburðir á dagskrá eins og hvolpajóga og pallborðsumræður.
Fyrir utan bragðgóðan mat og drykk, þá er einnig valkostur í fæði fyrir hunda. Og þó að þú eigir ekki hund sjálf/ur - þá ertu svo sannarlega velkominn til að njóta staðarins eins og hver annar gestur.