Það fannst ódýr hamborgari hjá Salt Bae

Salt Bae rekur 22 veitingastaði víðsvegar um heiminn.
Salt Bae rekur 22 veitingastaði víðsvegar um heiminn. mbl.is/

Við ætl­um ekk­ert að kynna Salt Bae frek­ar - því flest okk­ar vit­um meira um mann­inn en við þurf­um að vita. En til er sá veit­ingastaður und­ir hans hönd­um, sem sel­ur ham­borg­ara á skikk­an­legu verði. 

Tyr­keski slátr­ar­inn og mat­reiðslu­meist­ar­inn varð þekkt­ur fyr­ir óvenju­lega takta við að strá salti á steik og notaði frægðina til að opna úti­bú af lúx­us veit­inga­stöðum. Salt Bae á í dag 22 veit­inga­hús víðsveg­ar um heim­inn, og þar á meðal í London, New York, Dubai og An­kara. Í London kost­ar ham­borg­ari á mat­seðli um níu þúsund krón­ur á meðan gull­vaf­in út­gáfa kost­ar litl­ar 17 þúsund krón­ur. En það sem fáir vita er að Salt­bae Burger í Galata í Tyrklandi, býður upp á sömu teg­und af mat fyr­ir um­tals­vert minna fé - en þar kost­ar venju­lega út­gáf­an af borg­ar­an­um um 1.400 krón­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert