Iittala kynnir afmælisútgáfu

Nýjar vörur í tilefni að afmælisári Alvar Aalto.
Nýjar vörur í tilefni að afmælisári Alvar Aalto. mbl.is/Alvar Aalto

Þau eru ef­laust ófá heim­il­in þar sem ekki má finna í það minnsta eina vöru frá Iittala. Og hörðustu aðdá­end­ur mega ekki láta þess­ar frétt­ir fram­hjá sér fara. 

Í ár fagn­ar Iittala 125 ára af­mælis­ári finnska hönnuðar­ins Al­var Aalto, sem á ótal vör­ur í vöru­lín­um Iittala. Til að fagna ár­inu með sóma, hef­ur fyr­ir­tækið sent frá sér þrjár nýj­ar vör­ur - eða tvo nýja blóma­vasa og eina skál sem hef­ur áður verið gef­in út en mæt­ir hér í hærri út­gáfu - til­val­in fyr­ir snakk, ídýfu eða skartið ef því er að skipta. Bæði vas­arn­ir og skál­in verða fá­an­leg í mörg­um lit­um sem all­ir eiga ræt­ur í upp­runa­legu vöru­línu Al­var Aalto frá ár­inu 1936. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert