Súkkulaðikakan sem smellpassar í janúar

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

„Fyr­ir mörg­um árum þá skellti ég nokkr­um hrá­efn­um sam­an í bland­ar­ann og prófaði að baka úr varð þessi frá­bæra kaka. Toppaði hana með bön­un­um og krönsi og síðan þá hef ég gert hana af og til,“ seg­ir Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir á Döðlur & smjör um þessa dýr­ind­is köku.

„Hún er full­kom­in janú­ar kaka, þar sem marg­ir eru að sneiða hjá sykr­in­um eft­ir jól­in, hent­ar ótrú­lega vel sem fyrsta af­mæliskaka eða í af­mæl­in þegar maður vill bjóða upp á köku en ekki upp­fulla af sykri. Hún hef­ur slegið í gegn hjá öll­um aldri á mínu heim­ili.„

„Svo er krönsið svo gott ofan á að ég prófaði að gera það eitt og sér og vá hvað ég mæli með því í möff­ins form eða á plötu og skorið í bita. Full­komið á svona eft­ir­réttaplatta sem eru vin­sæl­ir núna, paraðir sam­an með t.d. jarðaberj­um, mel­ón­um og döðlum. Þá er gott að tvö­falda upp­skrift­ina.“

„Mér finnst gam­an að baka kök­una í 15 cm formi þá er hún aðeins þykk­ari og veg­legri, ef hún er bökuð í smellu­formi er gott að setja ban­an­ana og Kelloggs Corn­fla­kes blönd­una á meðan það er í form­inu.“

Súkkulaðikakan sem smellpassar í janúar

Vista Prenta

Súkkulaðikak­an

  • 10 döðlur
  • 1 ban­ani
  • 3 egg
  • 4 msk. kó­kosol­ía
  • 1/​2 dl kaffi
  • 40 g kakó
  • 65 g möndl­umjöl
  • 1 1/​2 tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar

Stillið ofn á 175°C. Stein­hreinsið döðlurn­ar og setjið í bland­ara ásamt ban­ana, eggj­um, kó­kosol­íu og kaffi, ef þið viljið sleppa kaff­inu er gott að skipta því út fyr­ir mjólk/​jurtamjólk, blandið vel sam­an. Hellið yfir í skál og blandið þur­refn­un­um og vanillu­drop­um sam­an við.

Smyrjið 20 cm form með Pam spreyi og hellið deig­inu í formið, bakið í 25-30 mín. Leyfið að kólna.

Ofan á

  • 1 ban­ani
  • 2 msk. kó­kosol­ía
  • 100 g Rjómasúkkulaði án viðbætts syk­urs frá Nóa Síríus
  • 2 dl Kelloggs Corn­fla­kes

Byrjið á því að setja kök­una á disk. Skerið þá ban­an­ann í sneiðar og dreifið yfir kök­una.

Blandið kó­kosol­íu og súkkulaði sam­an í skál, bræðið í ör­bylgju­ofni og hrærið vel sam­an. Hellið þá korn­fl­exi sam­an við og hrær­ir aft­ur vel. Dreifið yfir kök­una. Gott er að bera kök­una fram strax eða geyma hana í kæli þangað til að hún er bor­in fram.

Ljós­mynd/​Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert