Vinsælasti veitingastaðurinn á Tripadvisor ekki til

Við treyst­um á vefsíðuna Tripa­dviser þegar okk­ur vant­ar hug­mynd­ir að góðum veit­inga­hús­um úti í hinum stóra heimi - en þessi hér virðist ekki vera til, þrátt fyr­ir að tróna efst­ur á lista.

Á síðunni má finna yfir 4.100 mat­sölustaði í Montreal, og ný­verið hlaut veit­ingastaður­inn Le Nou­veau Duluth fyrsta sæti sem besti veit­ingastaður­inn á svæðinu. Veit­inga­húsið lýs­ir mat­ar­gerð sinni sem ekta kanadískri og hef­ur fengið 85 topp­ein­kunn­ir frá gest­um - þrátt fyr­ir að eng­in heimasíða sé til og afar und­ar­leg­ar mynd­ir fylgi með. Eins má hvergi finna upp­lýs­ing­ar um mat­seðil, starfs­fólk eða staðsetn­ingu.

Við nán­ari at­hug­un kom í ljós að ekki var allt með felldu. Mynd­irn­ar sem fylgja með staðnum sýna stofu og önn­ur var tek­in á íþrótta­bar, á meðan sú þriðja var af grín­ista frá Montreal. Tripa­dvisor hef­ur fjar­lægt skrán­ing­una, en spurn­ing er hversu marg­ir ferðamenn hafa eytt heilu kvöldi í að leita að staðnum sem er ekki til. 

Við get­um jafn­framt staðfest að veit­ingastaður­inn, sem er núm­er eitt á lista í Montreal, Bistro 1843, er svo sann­ar­lega til.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem staður sem þessi fær um­fjöll­un eins og sjá má hér fyr­ir neðan í frétt frá árínu 2018.

Vinsælasti veitingastaðurinn í Montreal er ekki til.
Vin­sæl­asti veit­ingastaður­inn í Montreal er ekki til. mbl.is/​Int­ist Cla­ir / Blend ima­ges / Getty ima­ges
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert