Ídýfan sem mun bókstaflega setja allt á hliðina

Ljósmynd/María Gomez

Það fer að bresta á með Of­ur­skál­inni eða Super Bowl og því ekki seinna vænna að ákveða hvaða veit­ing­ar verður boðið upp á.

Hér er á ferðinni ein svaðal­eg­asta ídýfa sem sést hef­ur en við erum að tala um jalapeno-ostaí­dýfu með BEI­KONI. Það er að sjálf­sögðu meist­ari María Gomez á Paz.is sem á heiður­inn af þess­ari snilld og hafi hún ævar­andi þakk­ir fyr­ir. Þetta er án efa ein sú allra girni­leg­asta ídýfa sem sést hef­ur og við þökk­um fyr­ir okk­ur.

Ídýfan sem mun bókstaflega setja allt á hliðina

Vista Prenta

Heit jalapeno-ostaí­dýfa með bei­koni sem þú verður að prófa

  • 250 g bei­konkurl eða bei­kon smátt skorið (geymið eins og 60-80 g til að dreifa yfir rétt­inn)
  • 200 g rjóma­ost­ur með graslauk og lauk 
  • 100 g sýrður rjómi með graslauk eða 10% sýrður rjómi (þessi með graslaukn­um er í grænu doll­un­um)
  • 1 kúfuð msk maj­ónes
  • 1 tsk. hvít­lauks­duft (ath. ekki hvít­laukssalt, held­ur garlic powder)
  • 1 tsk. lauk­duft (oni­on powder)
  • 1 tsk. þurrkaður graslauk­ur 
  • 1/​2 tsk. gróft salt 
  • 150 g rif­inn chedd­arost­ur (Geymið 60 g af þess­um 150 g til að strá yfir rétt­inn) 
  • 100 g havar­tíost­ur rif­inn (Geymið 40 g til að dreifa yfir rétt­inn)
  • 60 g rif­inn par­mesanost­ur (geymið 10 g til að dreifa yfir rétt­inn) 
  • 2 litl­ir eða 1 stór jalapeno­belg­pip­ar fersk­ur, smátt skor­inn (geymið smá til hliðar til að dreifa yfir rétt­inn)
  • smá chili­f­lög­ur (má sleppa) 
  • smá papriku­duft til að dreifa yfir rétt­inn

Aðferð

  1. Hitið ofn­inn á 180°C blást­ur. 
  2. Steikið bei­konkurlið á pönnu, í ofni eða air­fryer þar til stökkt og smá brúnt og setjið það svo á disk með eld­húspapp­ír á og setjið til hliðar. 
  3. Hrærið sam­an rjóma­ost, sýrðan rjóma, maj­ónes, hvít­lauks­duft, lauk­duft, þurrkaðan graslauk og salt.
  4. Bætið svo 90 g af rifn­um chedd­ar osti út í, 60 g af rifn­um havartí og 50 g af par­mes­an og hrærið vel sam­an.
  5. Bætið svo 170-190 g af bei­konkurl­inu útí og smátt skorn­um jalapeno­belg­pip­arn­um (fræhreinsið vel jalapenóið ef þið viljið ekki hafa rétt­inn sterk­an, en skiljið fræ eft­ir ef þið viljið hafa hann sterk­an. En alls ekki sleppa jalapeno, það er stjarn­an í rétt­in­um). Geymið smá til að dreifa yfir rétt­inn
  6. Hrærið allt þessu vel sam­an og setjið svo í eld­fast mót og sléttið jafnt og vel úr í formið. 
  7. Dreifið svo næst 60 g af chedd­arosti yfir, 40 g af rifn­um havar­tíosti og 10 g af par­mes­an jafnt yfir rétt­inn. 
  8. Dreifið svo rest­inni af bei­konkurl­inu, jalapenopip­arn­um, smá chili­f­lög­um ef þið viljið og papriku­duft­inu jafnt yfir rétt­inn. 
  9. Stingið þá í heit­an ofn­inn og hitið í 15-20 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn ofan á er orðinn gull­in­brúnn og allt orðið heitt og vel bráðnað. 
  10. Berið heitt fram með ný­bökuðu bagu­ettebrauði til að dýfa í, nachos, góðu kexi eða snakki sem þið elskið.
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert