Bollur eins og þær gerast bestar

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Bollu­dag­ur er hand­an við hornið og ekki seinna vænna að taka fram hræri­vél­ina og skella í gott bollukaffi. Hér erum við með æðis­lega upp­skrift frá Guðrúnu Ýri Eðvalds­dótt­ur á Döðlum & smjöri þar sem hún not­ar nýja Pipp-búðing­inn sem var að koma á markað.

Bollur eins og þær gerast bestar

Vista Prenta

Pipp-búðing­ur

  • 250 ml rjómi
  • 250 ml nýmjólk
  • 1 pk Pipp Royal-búðing­ur

Byrjið á því að út­búa búðing­inn og setjið inn í ís­skáp meðan þið gerið boll­urn­ar.

Blandið öllu sam­an í skál og þeytið vel sam­an í 2-3 mín. Setjið lok eða plast­filmu yfir skál­ina og kælið.

Vatns­deigs­boll­ur

  • 250 ml vatn
  • 125 g smjör
  • 125 g hveiti
  • 4 egg

Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjör­inu að bráðna. Takið pott­inn af hit­an­um og hrærið hveit­inu sam­an við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið ör­lítið. Setjið deigið í hræri­vél­ar­skál og bætið eggj­un­um út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautu­poka og sprautið boll­ur á smjörpapp­írsklædda plötu, eða notið tvær te­skeiðar til setja deigið á plöt­una. Bakið í 18-20 mín­út­ur.  Ef þið viljið hafa boll­urn­ar stærri þá er tím­inn auk­inn í sam­ræmi við það.

Fyll­ing

  • 50 g Nóa kropp
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 30 ml rjómi
  • 1-2 vel þroskaðar per­ur eða niðursoðnar

Setjið Nóa kroppið í plast­poka og lemjið með buff­hamri eða köku­kefli þangað til all­ar kúl­urn­ar eru farn­ar í sund­ur og setjið í skál.

Setjið þá súkkulaði og rjóma sam­an í skál og bræðið í ör­bylgju­ofni eða yfir vatnsbaði.

Afhýðið per­urn­ar og skerið í litla bita.

Skerið boll­urn­ar í tvennt og dýfið efri hlut­an­um ofan í súkkulaðið og beint í Nóa kropp-kurlið.

Takið þá búðing­inn úr ís­skápn­um. Gott er að þeyta aðeins upp í hon­um aft­ur í 2-3 mín til að fá áferðina lík­ari rjóma Setjið í sprautu­poka með stút en einnig er hægt að nota skeið.

Sprautið búðingn­um á neðri hluta boll­unn­ar og setjið 3-4 bita af peru í miðjunni á hverri bollu og lokið með efri part­in­um. End­ur­takið við all­ar boll­urn­ar.

Ljós­mynd/​Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir
Ljós­mynd/​Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert