Veitingahús sem er algjörlega geggjað

Stórglæsilegt veitingahús sem staðsett er í London.
Stórglæsilegt veitingahús sem staðsett er í London. mbl.is/Irina Boersma

Kop­ar og eik eru efniviðir sem dansa þétt sam­an á veit­ingastaðnum Ikoyi í London og út­kom­an er geggjuð.

Það er Dav­id Thulstrup sem á heiður­inn að hönn­un staðar­ins. Hann er með áber­andi sveigju í lofti sem gef­ur heild­ar­rým­inu fal­leg­an blæ. Vegg­ir staðar­ins eru klædd­ir með oxuðum kopar­plöt­um með bý­flugna­vaxi og gólfin eru þakin Gris de Ca­tal­an-kalk­steini sem burstaður með sér­stakri tækni til að mynda hamrað yf­ir­borðið. Hús­gögn­in eru sér­smíðuð og víða má sjá vegg­panela, klædda engi­fer­l­ituðu leðri.

Á Ikoyi er hrá­efnið fyrsta flokks, beint frá býli í bland við spenn­andi krydd frá Vest­ur-Afr­íku. Og það sem vek­ur mikla at­hygli er stór ís­skáp­ur sem tek­ur á móti gest­um er þeir mæta á staðinn - full­ur af kjöti og fiski til að minna fólk á hvaðan mat­ur­inn kem­ur.

Kopar og eik eru hér í aðalhlutverki.
Kop­ar og eik eru hér í aðal­hlut­verki. mbl.is/​Ir­ina Boersma
mbl.is/​Ir­ina Boersma
Sveigðar línur eru áberandi í hönnun staðarins.
Sveigðar lín­ur eru áber­andi í hönn­un staðar­ins. mbl.is/​Ir­ina Boersma
mbl.is/​Ir­ina Boersma
mbl.is/​Ir­ina Boersma
mbl.is/​Ir­ina Boersma
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert