Linda Ben sigrar konudaginn

Ef þú ætl­ar ein­hvern­tím­an að sigra konu­dag­inn þá erum við með réttu leiðina fyr­ir þig því þessi upp­skrift frá Lindu Ben gull­trygg­ir ár­ang­ur! Við staðhæf­um því að Linda hafi sigrað konu­dag­inn fyr­ir okk­ur öll í ár og þökk­um henni kær­lega fyr­ir.

„Hér höf­um við al­veg dá­sam­lega gott french toast sem er fyllt með rjóma­osti, jarðaberj­um og hun­angi. Rjóma­ost­ur­inn bráðnar á pönn­unni sem ger­ir brauðið al­veg stór­kost­lega “djúsí” og ljúf­fengt! Þetta er klár­lega einn af mín­um allra upp­á­halds spari morg­un­verðum og ég hef fulla trú á að hann verði þinn líka.

Maður byrj­ar á því að út­búa rjóma­osta­blönd­una. Upp­skrift­in er miðuð við 2 sam­lok­ur en þú get­ur marg­faldað upp­skrift­ina eft­ir því hversu sam­lok­ur þú vilt gera.

Það er hægt að út­búa brauðin dag­inn áður og láta þau drekkja í sig mjólkureggja­blönd­una yfir nótt, það mun bara skila þér meira djúsí brauði. Passaðu bara að geyma brauðin þá í eld­fasta­mót­inu og loka því vel t.d. með plast­filmu. Svo steik­ir þú brauðið bara um morg­un­inn. Þessi upp­skrift er því afar hent­ug þegar þú vilt gera extra vel við þig og þína en hef­ur kannski ekk­ert alltof mik­inn tíma um morg­un­inn.“

Linda Ben sigrar konudaginn

Vista Prenta

Jarðaberja og rjóma­osta­fyllt french toast

  • 4 stk. sam­loku­brauð (mér finnst heim­il­is­brauð henta best í french toast)
  • 2 egg
  • 1 dl nýmjólk
  • 1 msk. smjör
  • 1/​4 tsk. kanill
  • 2 msk. rjóma­ost­ur
  • 3-4 jarðaber (fer eft­ir stærð)
  • 1/​2 msk. hun­ang
  • Hlyns­íróp
  • Fleiri jarðaber til að bera fram með frech toast­inu
  • Örlít­ill flór­syk­ur (má sleppa)

Aðferð

  1. Skerið jarðaber niður í bita.
  2. Hrærið sam­an rjóma­ost­inn, hun­angið og jarðaberja­bit­ana. Skiptið blönd­unni á milli tveggja brauðsneiða. Setjið aðra brauðsneið ofan á hverja sneiðina með rjóma­ost­in­um.
  3. Hrærið sam­an egg, mjólk og kanil, ég notaði lítið eld­fast­mót sem passaði vel fyr­ir 1 sam­loku. Leggið sam­lok­una ofan í eggja­blönd­una, leyfið ann­ari hliðinni að draga blönd­una vel í sig og snúið svo sam­lok­unni svo hin hliðin dragi líka eggja­blönd­una í sig.
  4. Setjið 1/​2 msk af smjöri á pönnu og stillið á meðal lág­um hita. Steikið sam­lok­una á pönn­unni og setjið lok á pönn­una. Snúið við sam­lok­unni þegar önn­ur hliðin er orðin elduð (þið sjáið að brauðið er byrjað að brún­ast og egg­in elduð), lokið aft­ur pönn­unni með loki svo rjóma­ost­ur­inn inn í bráðni. End­ur­takið fyr­ir hina sam­lok­una.
  5. Sigtið ör­lít­inn flór­syk­ur yfir ef þið viljið, berið fram með hlyns­írópi og fersk­um jarðaberj­um.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert