Martha Stewart opnar verslun á Amazon

Þetta eru mögu­lega ein stærstu tíðindi árs­ins en eld­hús­gyðjan og ein sval­asta kona heims, Martha Stew­art hef­ur form­lega opnað versl­un á Amazon.

Það þýðir gott fólk að nú er hægt að panta all­ar henn­ar dýrðlegu vör­ur hingað til lands og nú get­ur heim­ilið þitt litið úr eins og Martha sjálf hafi mætt á svæðið og tekið til.

Í versl­un­inni kenn­ir ým­issa grasa. Eld­hús­vör­ur eru fyr­ir­ferðar­mikl­ar og þar eru bæði leirtau og eld­un­ar­vör­ur í boði. Ein­kenn­islit­ir Mörthu – ljós túrk­is­blár – er fyr­ir­ferðamik­ill. Einnig eru heim­il­is­vör­ur í boði á borð við rúm­föt, teppi og hand­klæði.

Hægt er kíkja í versl­un­ina HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert