Tiramisu-bollurnar sem toppa allt!

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höf­um við dá­sam­lega góðar vatns­deigs­boll­ur fyllt­ar með klass­íska eft­ir­rétt­in­um tiram­isu! Full­komn­ar með ljúf­feng­um kaffi­bolla,“ seg­ir Linda Ben um þess­ar boll­ur sem hún á al­farið heiður­inn af.

„Fyll­ing­in er út­bú­in að svipaðan hátt og þegar maður ger­ir osta­kök­ur, þ.e. maður hrær­ir flór­syk­ur sam­an við mascarpo­neost­inn sem maður hrær­ir svo sam­an við þeytt­an rjóma. Eng­in hrá egg hér. Svo drekk­ir maður lady fin­gers-kex­kök­un­um í kaffi. Maður ræður svo hvort maður sker kex­kök­urn­ar niður og bland­ar þeim sam­an við rjómann eða set­ur þær sér á hverja bollu fyr­ir sig. Það gæti verið hent­ugra að setja kaffi­drekkt kexið á hverja bollu fyr­ir sig ef ein­hvern lang­ar ekki í bollu með kaffi. Þá set­ur maður fyll­ingu í bæði botn­inn og topp­inn á boll­unni og kaffikexið á milli, lok­ar svo boll­unni og topp­ar með bræddu súkkulaði.“

Tiramisu-bollurnar sem toppa allt!

Vista Prenta

Tiram­isu-vatns­deigs­boll­ur

  • vatns­deigs­boll­ur
  • 400 ml rjómi
  • 150 g mascarpo­neost­ur
  • 200 g flór­syk­ur
  • 1 tsk vanillu­drop­ar
  • u.þ.b. 10 stk lady fin­gers-kex­kök­ur
  • 1 bolli sterkt kaffi
  • 200 g suðusúkkulaði
  • 100 ml rjómi

Aðferð:

  1. Bakið vatns­deigs­boll­urn­ar sam­kvæmt upp­skrift.
  2. Þeytið rjómann.
  3. Blandið sam­an flór­sykri og mascarpo­neosti. Bætið vanillu­drop­un­um út í. Blandið þeytta rjóm­an­um sam­an við osta­blönd­una.
  4. Setjið lady fin­gers-kex­kök­ur á bakka með smá brún. Hellið kaff­inu yfir kex­kök­urn­ar og leyfið þeim að taka í sig kaffið.
  5. Skerið kex­kök­urn­ar í minni bita og bætið þeim ofur var­lega sam­an við rjóma­blönd­una, blandið sam­an mjúk­lega með sleikju (við vilj­um fara rosa mjúk­lega svo við kreist­um ekki kaffið í kex­inu).
  6. Skerið boll­urn­ar í helm­inga og fyllið þær með rjóma­fyll­ing­unni.
  7. Setjið rjóma í pott og hitið að suðu.
  8. Brjótið suðusúkkulaðið í skál og hellið rjóm­an­um yfir súkkulaðið, hrærið þar til súkkulaðið hef­ur bráðnað og sam­lag­ast rjóm­an­um.
  9. Setjið súkkulaði ofan á hverja bollu.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert