Leita að manninum sem lifði af

Leikarinn Tom Hanks í hlutverki sínu í Castaway.
Leikarinn Tom Hanks í hlutverki sínu í Castaway.

Tóm­atsósu­fram­leiðand­inn Heinz setti til­kynn­ingu á In­sta­gram, þar sem þeir biðla til fólks um hjálp við að finna týnda tóm­atsó­su­m­ann­inn.

Það var fyr­ir stuttu að maður að nafni El­vis Franco­is rataði í frétt­irn­ar eft­ir að hafa hröklast út á opið haf þar sem hann lifði af heil­an mánuð á tóm­atsósu­flösku, hvít­lauks­dufti og krydd­ten­ing­um – áður en hon­um var bjargað af kól­umb­íska sjó­hern­um. Sag­an af El­vis rataði inn á helstu frétta­stof­ur heims, sem vakti áhuga hjá sósu­fram­leiðand­an­um Heinz. Var hug­mynd þeirra að færa El­vis nýj­an bát!

Það hef­ur þó reynst þraut­in þyngri að finna El­vis en Heinz hef­ur til að mynda haft sam­band við kól­umb­íska sjó­her­inn án ár­ang­urs. Í vik­unni sendi Heinz út til­kynn­ingu á In­sta­gram þar sem þeir biðla til al­menn­ings um hjálp til að finna El­vis - und­ir myllu­merk­inu #Find­theketchup­boatguy. Sam­kvæmt nýj­ustu færslu Heinz á In­sta­gram er maður­inn enn ófund­inn - en vitað er að hann býr í Dómeník­anska lýðveld­inu í Kari­bahafi.

Heinz leitar að tómatsósumanninum.
Heinz leit­ar að tóm­atsó­su­m­ann­in­um. mbl.is/​Heinz
mbl.is/​Heinz
mbl.is/​Heinz
mbl.is/​Heinz
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert