Svona masterar þú fullkomnar pönnukökur

Pönnukökur bæta alltaf skapið!
Pönnukökur bæta alltaf skapið! mbl.is/Jamie Oliver

Er það ein­ung­is heppni eða ein­stök fimni í úlnliðinum sem sker úr um gæði pönnu­kök­unn­ar, þegar við snú­um henni á pönn­unni? Eða kannski hvoru tveggja! Pönnu­kök­ur líta alls ekki út fyr­ir að vera erfiður bakst­ur, en get­ur auðveld­lega farið úr bönd­un­um ef við vönd­um okk­ur ekki.

Kokk­ur að nafni Lisa Marley, deildi mynd­broti á TikT­ok þar sem hún fer yfir meg­in­regl­urn­ar til að mastera full­komn­ar pönnu­kök­ur.

  • Notið pönnu með teflon húð.
  • Leyfið deig­inu að standa í fimm mín­út­ur áður en þið hellið því á pönn­una.
  • Sjáið til þess að pann­an sé sjóðandi heit er þið hellið olíu eða setjið smjör á pönn­una.
  • Þegar þið hellið deig­inu á pönn­una, veltið þá pönn­unni til að deigið nái að fylla út í all­an botn­inn. Þegar litl­ar loft­ból­ur hafa mynd­ast í deig­inu, skaltu aðeins velta pönn­unni fram og til baka til að losa um pönnun­kök­una - og þá get­ur þú byrjað að flippa henni við. Hreyf­ing­in ligg­ur í úlnliðnum og best er að vera ákveðinn og snögg­ur er við hand­leik­um pönn­una. Það má sjá nán­ar hvernig Lisa Marley sýn­ir réttu hand­tök­in í mynd­skeiðinu hér fyr­ir neðan.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert