Inniheldur 40% færri hitaeiningar

Marg­ur myndi halda því fram að hér væri á ferðinni frétt árs­ins en hið eina sanna Bai­leys hef­ur nú eign­ast litlu syst­ur sem heit­ir Bai­leys lig­ht og er snar­grenn­andi. Það má reynd­ar ekki segja svo­leiðis en Lig­ht út­gáf­an inni­held­ur 40% minni syk­ur og 40% færri hita­ein­ing­ar en upp­runa­lega gerðin og því má fast­lega reikna með að nýja Bai­leysið verði rifið úr hill­un­um enda þýðir þetta á manna­máli að maður get­ur drukkið helm­ingi meira (það er líka bannað að segja þetta!).

En að öllu gríni slepptu þá eru þetta gleðifregn­ir og ekki síst fyr­ir þá sem vilja minnka syk­ur­neyslu.

Bai­leys Lig­ht kem­ur í versl­an­ir ÁTVR þann 1. mars sem er einkar viðeig­andi þar sem hann kall­ast alla jafna B-dag­ur­inn þar sem form­leg sala á bjór hófst þann dag­inn árið 1989. B-dag­ur­inn er því orðinn Bai­leys og bjórdag­ur­inn mikli og munu ef­laust marg­ir fagna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert