Kvöldverðurinn sem tekur korter að búa til

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höf­um við svaka­lega góð nautatacos sem eru með sýrðum rjóma, mangósalsa, fersku kórí­and­er og hot sauce,“ seg­ir Linda Ben um þessa upp­skrift og við tök­um heils­hug­ar und­ir enda bland­ast hér sam­an frá­bær­ar bragðteg­und­ir sem eng­an ættu að svíkja.

„Þetta er afar fljót­leg­ur og ein­fald­ur rétt­ur, en það tek­ur um það bil 15 mín. að elda hann. Maður byrj­ar á því að út­búa mangósalsað með því að skera niður mangó, rauðlauk, papriku og kórí­and­er, kreist­ir svo límónusafa yfir. Nautaþynn­urn­ar frá SS eru al­gjör snilld í svona rétti en það eru hágæða nauta­kjöt sem er búið að skera niður í litla strimla svo maður ein­fald­lega smell­ir þeim á pönn­una, krydd­ar til og steik­ir.“

„Mér finnst alltaf gott að steikja vefj­urn­ar fyrst aðeins á pönnu til að hita þær og gera þær ör­lítið stökk­ari. Maður set­ur svo sýrðan rjóma í botn­inn á vefj­un­um og set­ur svo nauta­kjötið og mangósalsað yfir. Ef þú fíl­ar sterk­an mat þá mæli ég mikið með að setja svo­lítið af hot sauce yfir. Svo er alltaf gott að bæta við ör­lítið meira af kórí­and­er og límónusafa yfir.“

Kvöldverðurinn sem tekur korter að búa til

Vista Prenta

Nautatacos með mangósalsa

  • 400 g Nautaþynn­ur frá SS
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1/​2 tsk. cum­in
  • 1/​4 tsk. chilíkrydd
  • 1/​4 tsk. cayenn­ep­ip­ar
  • Salt og pip­ar
  • 3 hvít­lauksrif
  • Mangósalsa (upp­skrift hér fyr­ir neðan)
  • Sýrður rjómi
  • Ferskt kórí­and­er
  • Litl­ar maísvefj­ur
  • Cholula hot sauce (má sleppa ef þið viljið ekki hafa tacóið sterkt)

Mangósalsa

  • 1 mangó
  • 1/​2 rauðlauk­ur
  • 1 rauð paprika
  • 1 lúka ferskt kórí­and­er
  • Safi úr 1 lime

Aðferð:

  1. Byrjið á því að út­búa mangósalsað með því að skera mangóið í litla bita, skerið einnig rauðlauk­inn smátt niður og paprik­una. Skerið kórí­and­erið einnig smátt niður, blandið öllu sam­an í skál og kreistið límónusafa yfir.
  2. Kryddið nautaþynn­urn­ar með paprikukryddi, cum­in, chilí, cayenne, salti og pip­ar. Steikið á pönnu þar til nán­ast eldaðar í gegn, rífið þá hvít­lauksrif­in yfir kjötið á pönn­unni og steikið þar til kjötið er til­búið.
  3. Steikið maísvefj­urn­ar létt á pönnu til að hita þær.
  4. Setjið sýrðan rjóma í botn­inn, nauta­kjötið og mangósalsað, og dreifið fersku kórí­and­er og hot sauce yfir.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert