Döðlukaramellufyllt heilsukaka

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höf­um við dá­sam­lega góða köku sem inni­held­ur nán­ast eng­an viðbætt­an hvít­an syk­ur en er al­veg svaka­lega góð og nátt­úru­lega sæt á bragðið. Kak­an er einnig veg­an, er merki­lega ein­föld og inni­held­ur fjöld­an all­an af holl­um inni­halds­efn­um,“ seg­ir Linda Ben um þessa bragðgóðu köku sem við flokk­um sem heilsu­köku.

„Maður byrj­ar á því að baka botn­inn sem er að mestu leyti úr höfr­um, hnetu­smjöri, kó­kos­hveiti, hafrajóg­úr­ti. Svo mauk­ar maður döðlur og smyr ofan á botn­inn. Því næst bræðir maður dökk súkkulaði og leyf­ir því að stirðna ofan á kök­unni. Útkom­an er al­veg svaka­lega góð. Seig­ur botn­inn, mjúka sæta milli­lagið og stökkt súkkulaðið sem bráðnar í munni. Ég get vel trúað því að þessi eigi eft­ir að slá í gegn hjá mjög mörg­um.“

Döðlukaramellufyllt heilsukaka

Vista Prenta

Döðluk­ara­mellu­fyllt heilsukaka

  • 2 msk. hör­fræ
  • 1/​2 dl vatn
  • 150 ml hafrajóg­úrt með kara­mellu og peru frá Veru Örnu­dótt­ir
  • 1 dl hnetu­smjör
  • 1/​2 dl hlyns­íróp (má sleppa ef þið viljið hafa kök­una minna sæta)
  • 100 g haframjöl
  • 50 g kó­kos­hveiti
  • 1/​2 tsk. mat­ar­sódi
  • 1/​2 tsk. lyfti­duft
  • 1/​2 tsk. salt
  • 250 g döðlur
  • 150 g 70% súkkulaði

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 175°C, und­ir og yfir hita.
  2. Myljið hör­fræ­in og setjið í skál, hellið vatn­inu í skál­ina og blandið sam­an. Leyfið þessu að taka sig í u.þ.b. 5 mín eða á meðan þið blandið sam­an hinum inni­halds­efn­un­um.
  3. Setjið hafrajóg­úr­tið í skál ásamt, hnetu­smjöri, hlyns­írópi, haframjöli, kó­kos­hveiti, mat­ar­sóda, lyfti­duft og salti. Blandið öllu sam­an ogg bætið þá hör­fræj­a­blönd­unni út í. Hrærið öllu sam­an.
  4. Setjið smjörpapp­ír í brauðform sem er u.þ.b. 12×30 cm á stærð, eða svipað stórt.
  5. Pressið deigið í formið og bakið í u.þ.b. 20-25 mín eða þar til kak­an er aðeins byrjuð að verða gull­in­brún á lit­inn. Kælið kök­una á meðan þið gerið næstu skref.
  6. Setjið döðlurn­ar í skál og hellið heitu vatni yfir þær og leyfið þeim að standa í u.þ.b. 5-10 mín. Þetta er gert til að mýkja þurrkaðar döðlur, ef þú ert með fersk­ar döðlur þá get­uru sleppt þessu skrefi.
  7. Setjið döðlurn­ar í bland­ara eða mat­vinnslu­vél og maukið, gott er að setja ör­lítið af vatn­inu með svo þær verði að al­veg mjúku mauki.
  8. Smyrjið döðlumauk­inu ofan á kök­una.
  9. Bræðið helm­ing­inn af dökka súkkulaðinu yfir vatnsbaði og setjið hinn helm­ing­inn í skál. Hellið bráðnaða súkkulaðinu yfir hitt og hrærið þar til allt súkkulaðið hef­ur bráðnað (þetta er gert svo súkkulaðið verði aft­ur stökkt þegar það stirðnar). Hellið súkkulaðinu yfir döðlulagið. Kælið svo súkkulaðið stirðni.
  10. Skerið kök­una í sneiðar.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert