Brauðrétturinn sem Bergþór elskar

Jóna Lára tínir jurtir í náttúrinni og þurrkar. Úr þessu …
Jóna Lára tínir jurtir í náttúrinni og þurrkar. Úr þessu gerir hún hina og þessa heilsubætandi drykki. Hún bauð upp á brenninetludrykk, vallhumal-brenninetlu-seyði og hamp-seyði. Allt svo hressandi. Ljósmynd/Albert Eiríksson

Meist­ari Al­bert Ei­ríks­son deildi á dög­un­um upp­skrift að brauðrétt sem feng­inn var frá Jónu Láru Svein­björns­dótt­ur. Svo góður var brauðrétt­ur­inn að maki Al­berts, Bergþór Páls­son, gat vart á heil­um sér tekið. 

„Ég fékk einn allra besta heita brauðrétt sem ég hef smakkað, þú verður að birta upp­skrift­ina,” sagði Bergþór um heit­an brauðrétt sem Jóna Lára Svein­björns­dótt­ir kom með í kvennakór­spartí seg­ir Al­bert á heimasíðunni sinni Al­bert Eld­ar.

„Heit­ir brauðrétt­ir hafa verið með vin­sæl­ustu sauma­klúbbs­rétt­um um ára­bil, en gald­ur­inn við þenn­an gætu verið ómiss­andi kasjúhnet­urn­ar. Þegar þær rist­ast ger­ast ein­hverj­ir töfr­ar. Alla vega er hann mjög ljúf­feng­ur. Eins og við var að bú­ast tók Jóna Lára vel í að út­búa rétt­inn sem að grunni til er af síðunni Ólöf­Humm­us og er þar veg­an.“

Brauðrétturinn sem Bergþór elskar

Vista Prenta

Heit­ur brauðrétt­ur – einn sá allra besti

  • 7 brauðsneiðar
  • 5-6 svepp­ir, í sneiðum
  • 1 dós asp­as
  • 7 msk. mæj­ónes
  • 1 lúka ferskt spínat
  • salt og pip­ar
  • 1 1/​2 dl kasjúhnet­ur
  • Rif­inn ost­ur

Aðferð:

  1. Skerið niður brauðsneiðar í litla ten­inga og dreifið í eld­fast mót.
  2. Hellið asp­a­svökv­an­um jafnt yfir brauðið.
  3. Blandið sam­an mæj­ónesi, spínati, svepp­un­um og asp­asin­um í skál. Saltið og piprið.
  4. Dreifið osti yfir og kasjúhnet­um
  5. Bakið í ofni á 160°C í rúm­lega 20 mín.
Ljós­mynd/​Al­bert Ei­ríks­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert