Bolognese eins og þú hefur aldrei smakkað!

Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

„Mamma mia, þessi rétt­ur er svo mik­il veisla! Ég elska gott bolog­nese en þessi sprengdi alla skala. Að steikja parma­skink­una bæt­ir mjög miklu við þenn­an rétt, bæði í áferð og bragði og að rífa mozzar­ella­kúl­ur yfir rétt áður en mat­ur­inn er bor­inn fram er al­gjör negla,“ seg­ir Snorri Guðmunds á Mat­ur & mynd­ir um þenn­an dá­sam­lega rétt sem er eig­in­lega skyldusmakk.

„Ef þið hafið ekki prófað að steikja parma­skinku áður og elskið gott pasta þá er ekki eft­ir neinu að bíða og skella í þenn­an rétt við fyrsta tæki­færi!“

Bolognese eins og þú hefur aldrei smakkað!

Vista Prenta

Ítalskt bolog­nese með steiktri parma­skinku og brædd­um mozzar­ella

Fyr­ir 2:

  • 300 g ungnauta­hakk
  • 1 stk. hvít­lauksrif
  • 70 g Parma skinka
  • 8 stk. græn­ar ólíf­ur
  • 180 g spaghetti
  • 200 g niðursoðnir tóm­at­ar
  • 90 ml rjómi
  • 30 g Par­mes­an
  • 1 stk. súr­deigs bagu­ette
  • 50 g Mozzar­ella rif­inn
  • 10 stk. Mozzar­ella­kúl­ur
  • 1,5 msk. tóm­at­púrra
  • 0,5 msk. nautakraft­ur / Oscar
  • 2 tsk. Her­bs Provence / Pottagaldr­ar
  • 5 g breiðblaða stein­selja

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott ásamt ríf­legu magni af salti og náið upp suðu.
  2. Hitið olíu á pönnu við meðal­há­an hita. Rífið Parma skinku í bita og steikið þar til hún er stökk. Geymið.
  3. Hitið olíu á pönnu við meðal­há­an hita. Bætið hakki út á pönn­una og steikið þar til hakkið er fulleldað. Pressið hvít­lauksrif út á pönn­una og steikið í stutta stund. Bætið við tóm­at­púrru, nautakraft og her­bs provence. Steikið í stutta stund. Sneiðið ólíf­ur og bætið út á pönn­una.
  4. Bætið niðursoðnum tómöt­um og rjóma út á pönn­una. Rífið helm­ing­inn af par­mes­an ost­in­um sam­an við og látið malla und­ir loki á meðan pasta er soðið. Smakkið til með salti.
  5. Bætið spaghetti út í sjóðandi vatnið og sjóðið í um 9 mín eða þar til spaghett­i'ið er mjúkt en þó með smá biti (al dente). Geymið smá pasta­vatn ef þarf til þess að þynna sós­una.
  6. Skerið brauð í tvennt og smyrjið með smá smjöri. Rífið svo­lít­inn par­mes­an ost yfir og dreifið svo mozzar­ella osti yfir. Bakið í miðjum ofni á 200°C grill still­ingu þar til ost­ur­inn er fal­lega bráðinn og gyllt­ur.
  7. Bætið spaghetti út í kjötsós­una og blandið vel sam­an. Notið pasta­vatn til að þynna sós­una ef þarf.
  8. Saxið stein­selju hrærið sam­an við rétt­inn á pönn­unni ásamt steiktri parma­skinku og mozzar­ella­kúl­um. Rífið rest­ina af par­mes­an yfir.
  9. Berið fram með góðu sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert