Heinz segist hafa fundið Elvis

Lífið er ljúft á suðrænum slóðum.
Lífið er ljúft á suðrænum slóðum. mbl.is/iStockphoto

Við sögðum ykk­ur ný­verið frá manni sem tóm­atsósu­fram­leiðand­inn Heinz leitaði að án ár­ang­urs en maður­inn er nú fund­inn.

El­vis Franco­is rataði í frétt­irn­ar eft­ir að hafa lifað af heil­an mánuð á reki út á sjó eft­ir að hafa lent í hrell­ing­um, þar sem hann nærðist nán­ast ein­göngu á tóm­atsósu. Heinz setti inn til­kynn­ingu á In­sta­gram þar sem þeir óskuðu eft­ir aðstoð með að finna El­vis, því þeim langaði til að færa hon­um nýj­an bát - en leit­in virt­ist ekki ætla skila ár­angri í fyrstu þrátt fyr­ir marg­ar til­raun­ir.

Nýj­ustu frétt­ir eru þó þær, að Heinz hef­ur staðfest að El­vis sé fund­inn á kar­ab­íska haf­inu - en það voru hátt í fimm millj­ón manns sem sáu In­sta­gram færslu Heinz um leit­ina að El­vis. Hver seg­ir svo að mátt­ur sam­fé­lags­miðla sé ekki öfl­ug­ur!

Vis dette opslag på In­sta­gram

Et opslag delt af Heinz (@heinz)

 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert