Marengsrúlluterta sem þið verðið að smakka

Ljósmynd/Linda Ben

Mar­engsrúllu­terta er mögu­lega eitt það snjall­asta og girni­leg­asta sem við höf­um heyrt um. Það er meist­ari Linda Ben sem á heiður­inn að þess­ari snilld sem við köll­um skyldusmakk enda hljóm­ar það hreint stór­kost­lega að blanda sam­an mar­engs og mangó!

„Mar­engs­inn sjálf­ur er mjúk­ur, þ.e. hann er stökk­ur að utan en ekki al­veg bakaður í gegn, en það eru bestu mar­engs­arn­ir að mínu mati. Svo djúsí og góðir. Rúllu­tert­an er svo fyllt með mangóbit­um og ástar­ald­in sem ger­ir hana svo ferska og sum­ar­lega. Þetta sæta með súra ástar­ald­in­inu er eitt­hvað annað gott!“

Marengsrúlluterta sem þið verðið að smakka

Vista Prenta

Mangó og ástar­ald­in mar­engsrúllu­terta

  • 5 eggja­hvít­ur
  • 1/​4 tsk. cream of tart­ar
  • 300 g syk­ur
  • 30 g korn­sterkja (maizenamjöl)
  • 500 ml rjómi frá Örnu Mjólk­ur­vör­um
  • 2 mangó
  • 3 ástar­ald­in

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 175°C, und­ir og yfir hita.
  2. Blandið sam­an sykr­in­um og korn­sterkj­unni, leggið til hliðar.
  3. Setjið eggja­hvít­urn­ar í skál ásamt cream of tart­ar, byrjið að þeyta. Þegar eggja­hvít­urn­ar byrja að freyða setjiði þá syk­ur­blönd­una út í nokkr­um skömmt­um og þeytið svo áfram þar til stíf­ir topp­ar hafa mynd­ast.
  4. Setjið smjörpapp­ír á ofn­plötu og setjið eggja­hvít­urn­ar á smjörpapp­ír­inn. Sléttið úr með spaða þar til kak­an er orðin u.þ.b. 25×35 cm stór.
  5. Bakið í 30 mín og takið út úr ofn­in­um og leyfið hon­um að kólna.
  6. Þeytið rjómann, skerið 1 1/​2 mangó í ten­inga og einn helm­ing­inn í sneiðar. Skerið 2 ástar­ald­inið í helm­inga og takið inn­an úr þeim og setjið í skál.
  7. Setjið smjörpapp­ír á borðið sem er aðeins stærri en mar­engs­inn. Hvolfið mar­engsn­um á nýja smjörpapp­ír­inn og takið gamla smjörpapp­ír­inn í burtu.
  8. Smyrjið u.þ.b. 3/​4 af þeytta rjóm­an­um á mar­engs­inn, dreifið mangó ten­ing­un­um yfir rjómann ásamt ástar­ald­in­kjöt­inu.
  9. Rúllið rúllu­tert­unni upp frá lang­hliðinni, byrjið á því að rúlla litl­um hluta þétt upp (notið smjörpapp­ír­inn til að hjálpa ykk­ur) og rúllið svo rest­inni upp.
  10. Komið rúllu­tert­unni fyr­ir á bakka og setjið rest­ina af rjóm­an­um ofan á hana. Skreytið með mangó sneiðum og inni­hald­inu úr þriðja ástar­ald­in­inu.
Ljós­mynd/​Linda Ben
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert