Besta leiðin til að steikja beikon

Við erum með bei­kon á heil­an­um og skyldi eng­an undra því bei­kon er með því besta sem hægt er að fá. En hvernig er best að steikja það... þið vitið... þannig að það verði full­kom­lega krispí og gott.

Við horfðum á þetta skemmti­lega mynd­band þar sem fjór­ar mis­mun­andi aðferðir eru notaðar. Í fyrsta lagi pönnu­steik­ing, í öðru lagi bakst­ur, þriðja lagi ör­bylgju­ofn og í fjórða lagi er prófuð ein­hver græja sem fram­leiðend­ur full­yrða að sé ótrú­lega snjöll en reyn­ist vera al­gjört drasl.

Og hver var út­kom­an?

Pönnu­steikta bei­konið var frá­bært... en það fékk mín­us­stig fyr­ir hvað þurfti að sinna því mikið því eins og við þekkj­um þá má vart hafa aug­un af því.

Hæstu eink­un­ina fékk bakaða bei­konið en það var full­kom­lega stökkt og bragðgott. Áferðin þótti full­kom­in og mælt var sér­stak­lega með þess­ari aðferð.

Örbylgju­eldaða bei­konið kom á óvart og fékk reynd­ar hærri ein­kunn en það pönnu­steikta sem ætti að eyða for­dóm­um ansi margra. Trixið er bara að elda það nóg.

Bei­kong­ræj­an fékk svo fall­ein­kunn og fólki ráðlagt að kaupa hana ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert