92 ára gamalt páskaegg enn óopnað

Eric Boden var ársgamall er hann fékk þetta páskaegg sem …
Eric Boden var ársgamall er hann fékk þetta páskaegg sem aldrei hefur verið opnað. mbl.is/SWNS

Til er páska­egg sem er eldra í árum en flest okk­ar hér á landi og víðar, en eggið er hvorki meira né minna en 92 ára gam­alt og stend­ur enn í upp­runa­legu umbúðunum.

Manni að nafni Eric Bod­en í Bretlandi, var gefið Nestle páska­egg árið 1931 sem aldrei hef­ur verið opnað - en Eric sjálf­ur topp­ar 93 ára ald­ur­inn í ár og var því árs­gam­all er hann fékk eggið að gjöf frá frænda sín­um. Móðir hans vildi geyma eggið þar til hann yrði eldri og gæti þá notið þess frek­ar, og síðan er liðin næst­um heil öld. Páska­eggið er tæp­ir 23 cm að stærð, pakkað inn í rauðar umbúðir með stórri slaufu um sig miðja. Og hef­ur eggið verið geymt í kassa til að vernda það í öll þessi ár.

Til gam­ans hef­ur Eric sett sig í sam­band við heims­meta­bók­ina, þar sem hann tel­ur sig vera með í hönd­un­um elsta páska­eggið - í það minnsta í Bretlandi. Súkkulaði hef­ur þó því miður ekki sömu eig­in­leika og vín sem verður bara betra með ár­un­um og alls ekki mælt með að borða slíkt eft­ir löngu sett­an síðasta sölu­dag.

mbl.is/​SWNS
mbl.is/​SWNS
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert