Geggjuð quesadilla sem tekur enga stund

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höf­um við ljúf­feng­ar nauta qu­es­a­dillas sem er afar ein­fald­ur og fljót­leg­ur kvöld­mat­ur. Það tek­ur ein­ung­is 15 mín að smella í þenn­an kvöld­mat,“ seg­ir Linda Ben um þessa ljúf­fengu upp­skrift.

„Maður byrj­ar á því að steikja nauta­kjötið (líka hægt að nota af­gangs nauta­kjöt í þessa upp­skrift), bæt­ir svo lauk, papriku, hvít­lauk og gul­um baun­um á pönn­una, ásamt auðvitað taco krydd­blöndu. Svo set­ur maður nóg af osti á vefj­ur og nauta­kjöts­blönd­una, steik­ir svo á pönnu þar til ost­ur­inn bráðnar (líka hægt að nota slétt sam­lokugrill), skerð svo niður og bæt­ir grísku jóg­úr­ti á, fersku kórí­and­er og salsa sósu. Ein­falt, mjög fljót­legt og virki­lega bragðgott!“

Geggjuð quesadilla sem tekur enga stund

Vista Prenta

Nauta qu­es­a­dilla

  • 400 g nauta­kjötsþynn­ur (líka hægt að nota hakk eða af­gangs nauta­kjöt skorið í litla bita)
  • 1 1/​2 msk taco krydd­blanda
  • 8 vefj­ur
  • 1 rauð paprika
  • 1 lauk­ur
  • 3 hvít­lauksrif
  • 140 g gul­ar baun­ir
  • 230 g rif­inn mozzar­ella frá Örnu Mjólk­ur­vör­um
  • Grískt jóg­úrt frá Örnu Mjólk­ur­vör­um
  • Ferskt kórí­and­er
  • Salsa sósa

Aðferð:

  1. Steikið nauta­kjötið á pönnu, á meðan það er að eld­ast, skerið lauk­inn niður í sneiðar og bætið hon­um svo á pönn­una.
  2. Skerið paprik­una í sneiðar og bætið á pönn­una. Steikið þar til þær eru nán­ast orðnar mjúk­ar.
  3. Rífið hvít­lauksrif­in niður og bætið á pönn­una ásamt gulu baun­un­um, steikið þar til allt er eldað í gegn.
  4. Raðið vefjn­um á borðið og skiptið ost­in­um á milli þeirra allra.
  5. Skiptið svo nauta­kjöts­blönd­unni á milli 4 þeirra og lokið svo með þeim sem eru bara með osti.
  6. Steikið á pönnu upp úr ör­lít­illi kó­kosol­íu eða ólífu olíu á báðum hliðum á væg­um hita, passið að loka pönn­unni með loki svo hit­inn lok­ist inni og bræði ost­inn.
  7. Skerið í sneiðar og berið fram með grísku jóg­úr­ti, kórí­and­er og salsa sósu.
Ljós­mynd/​Linda Ben
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert