Eva og Sylvía hönnuðu Hamingjugraut

Sylvía Briem og Eva Mattadóttir.
Sylvía Briem og Eva Mattadóttir. Ljósmynd/Aðsend

Alþjóðlegi ham­ingju­dag­ur­inn er þann 20. mars næst­kom­andi og af því til­efni verður boðið upp á sér­leg­an Ham­ingjugraut á H bar sem staðsett­ur er í H versl­un­inni upp á Bílds­höfða.

Það voru Sylvía Briem og Eva Matta­dótt­ir, þátta­stjórn­end­ur í hinum vin­sælu hlaðvarpsþátt­um Norm­inu, sem sáu um hönn­un graut­stins.

„Graut­ur mánaðar­ins á H bar að þessu sinni er Ham­ingjugraut­ur­inn sem þær Eva Matta­dótt­ir og Sylvía Briem í Norm­inu hönnuðu sér­stak­lega út frá gild­um sín­um og áhersl­um þegar kem­ur að nær­ingu og al­mennri vellíðan. „Við hönnuðum graut­inn með margt í huga. Við vild­um að hann yrði nær­ing­ar­rík­ur en samt eins og djúsí eft­ir­rétt­ur. Þessi graut­ur er allt; krönsí, salt­ur, sæt­ur, mjúk­ur og holl­ur. Dekr­ar við alla bragðlauk­ana. Hann inni­held­ur líka góð prótein, holla fitu, andoxun­ar­efni og mega 3 og 6 olíu. Njóttu þess að fylla sál og lík­ama af hreinni orku sem end­ist all­an dag­inn,“ að því að fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu.

Upp­skrift­in er nokkuð ein­föld en af­skap­lega ljúf­feng

Ham­ingjugraut­ur

  • Vanillu kó­kos grísk jóg­úrt
  • Chia graut­ur
  • Hnetu­biti
  • Blá­ber
  • Hnetumuln­ing­ur
  • Hamp­fræ
  • Graskers­fræ
  • Hnetukara­mellusósa
Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert