Danir halda áfram að toppa sig

Nýjar glervörur frá Holmegaard er kallast LILY.
Nýjar glervörur frá Holmegaard er kallast LILY. mbl.is/Holmegaard

Danski hús­búnaðarfram­leiðand­inn Hol­mega­ard var að senda frá sér nýja diska, skál­ar og glös sem kall­ast LILY.

LILY er fram­leitt úr handpressuðu lituðu gleri, sem mun ekki tær­ast við notk­un. Inn­blástur­inn að stell­inu kem­ur frá mis­mun­andi stig­um vatna­lilj­unn­ar, er hún blómstr­ar á vatn­inu. Það er nefni­lega eitt­hvað draum­kennt við vatna­lij­una, blóm sem flýt­ur á kyrru vatni og er í full­kom­inni nú­vit­und sem end­ur­spegl­ast hér í þess­um nýju vör­um. Ein­fald­ar, mjúk­ar og straum­línu­lagaðar lín­ur skapa jafn­vægi á milli þess að vera róm­an­tískt og nú­tíma­legt. Það eru fjór­ir lit­ir í boði sem auðvelt er að blanda sam­an að vild, Blue Iris, Tof­fee Rose, Cherry Blossom og Cle­ar. Að búa til fal­leg­ar, hágæða glervör­ur hef­ur alltaf verið for­gangs­atriði hjá Hol­mega­ard, sem hef­ur tek­ist vel til hér sem og alltaf.

mbl.is/​Hol­mega­ard
mbl.is/​Hol­mega­ard
mbl.is/​Hol­mega­ard
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert