Súpan sem þið verðið að smakka

Ljósmynd/Linda Ben

Hér erum við með dýr­ind­is súpu úr smiðju Lindu Ben sem bragðast hreint dá­sam­lega og smellpass­ar í kvöld­mat­inn.

Súpan sem þið verðið að smakka

Vista Prenta

Quin­oa græn­met­is­súpa

  • 1 msk. kó­kosol­ía bragðlaus frá Muna
  • 1 lauk­ur
  • 2-3 gul­ræt­ur (2 meðal stór­ar, 3 litl­ar)
  • 1 zucchini
  • 1 lít­il sæt kart­afla
  • 5-6 hvít­lauksrif
  • 400 g dós af hökkuðum tómöt­um
  • 1 1/​2 lítri vatn
  • 2-3 kjúk­lingakraft­ar (líka hægt að nota græn­met­is)
  • 1 1/​2 dl quin­oa frá Muna
  • 1 tsk. salt
  • 1/​2 tsk. pip­ar
  • 300 g niðursoðnar kjúk­linga­baun­ir frá Muna
  • 2 lúk­ur spínat
  • Fersk­ur par­mes­an

Aðferð:

  1. Setjið kó­kosol­íu í stór­an pott.
  2. Skerið lauk­inn mjög smátt niður, skerið einnig gul­ræt­ur, zucchini og sæta kart­öflu, setjið ofan í pott­inn og steikið þar til lauk­ur­inn er far­inn af verða glær.
  3. Pressið hvít­lauksrif­inn og bætið út í pott­inn, steikið.
  4. Bætið hökkuðu tómöt­un­um út í og blandið sam­an.
  5. Hellið vatn­inu út í pott­inn og bætið kjúk­lingakraft­in­um út í.
  6. Setjið quin­oa í fínt sigti, skolið það mjög vel og bætið svo út í súp­una.
  7. Kryddið með salti og pip­ar, hrærið vel sam­an og setjið lokið á pott­inn. Leyfið þessu að malla í u.þ.b. 25-30 mín og hrærið mjög reglu­lega í.
  8. Þegar quin­oað er soðið og græn­metið mjúkt í gegn, bætið þá kjúk­linga­baun­um og spínati út í pott­inn, hrærið og látið malla í 5 mín.
  9. Berið fram með fersk­um par­mes­an.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert