Grænmetið sem fer í fegrunaraðgerð

Gulrætur eru hollar og næringarríkar.
Gulrætur eru hollar og næringarríkar. mbl.is/

Við þekkj­um öll gul­ræt­ur sem hollt og gott snarl á milli mála. En það eru einnig til svo­kallaðar ‘baby-carrots’, eða minni út­gáfa af venju­leg­um gul­rót­um sem þykja þó ekki eins góðar og við höld­um. Smá-gul­ræt­ur voru fundn­ar upp á ní­unda ára­tugn­um og hafa löng­um þótt vera þægi­legt snarl til að grípa með á ferðinni, en það eru nokk­ur atriði sem þó ber að hafa í huga.

  • Smá-gul­ræt­ur eru í raun ekki ‘ba­by’, þó að umbúðirn­ar og út­litið segi annað. Hér eru í raun um venju­leg­ar gul­ræt­ur að ræða sem búið er að skera niður og snyrta til í svo­kallaða snarl stærð.
  • Smá-gul­ræt­ur smakk­ast ekki eins og venju­leg­ar gul­ræt­ur, því það er bragðmun­ur hvort gul­rót­in sé búin að fara í gegn­um verk­smiðjuna eða ný­kom­in upp úr jörðinni.
  • Iðnaður­inn í kring­um smá-gul­ræt­ur er næst­um á pari við hinn nú­tíma­lega feg­urðar­heim - þar sem of feit­ar eða út­lits­gallaðar gul­ræt­ur eru tekn­ar frá og fargað, notað í safagerð eða í fóður.
  • Til að koma í veg fyr­ir ör­verumeng­un, eru smá-gul­ræt­ur skolaðar með veikri klór­lausn áður en þeim er pakkað í umbúðir.
  • Þar að auki eru smá-gul­ræt­ur oft­ast dýr­ari en venju­leg­ar gul­ræt­ur. Við borg­um sem sagt meira fyr­ir að láta skera gul­ræt­urn­ar niður, setja þær í fegr­un­araðgerð og skola þær upp úr klór (svona ef við ætl­um okk­ur að vera harðir gagn­rýn­end­ur).
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert