Hvaða blöndunartæki passa þér best?

Kraninn í eldhúsinu má stela athyglinni eins og við sjáum …
Kraninn í eldhúsinu má stela athyglinni eins og við sjáum hér. mbl.is/Billigvvs.dk

Vant­ar þig til­breyt­ingu? Það þarf ekki meira til en að skipta um krana inn í eld­húsi eða baðher­bergi, til að fá nýtt út­lit. Hér er sam­an­tekt af því sem gæti komið til greina og auðveldað valið. Blönd­un­ar­tæki finn­ast í ótal út­færsl­um, spurn­ing­in er hversu langt viltu ganga? Viltu hafa skynj­ara á vatn­inu, eða einn sem gef­ur þér sóda­vatn eða get­ur jafn­vel soðið vatn? Og hvaða lit­ur heill­ar?

Gyllt­ur glamúr
Að velja gyllt­an krana er ekki bara ávís­un á að þvo hend­urn­ar, því kran­inn verður ákveðinn skúlp­túr í rým­inu. Stend­ur þar glæst­ur og þjón­ar sínu hlut­verki sem aldrei fyrr.

Krómuð klass­ík
Það verður ekki klass­ísk­ara en krómið, og það ekki að ástæðulausu. Það er auðvelt að þrífa krómið og það dug­ar í mörg ár. Ef þú vilt sækj­ast eft­ir aðeins meira en glans­andi yf­ir­borðið, þá er burstað króm kannski málið.

Ein­falt og hvítt
Hvít blönd­un­ar­tæki eru kannski ekki þitt fyrsta val, og sjást ekki oft í eld­hús­um eða inn á baðrým­um - en fær­ir okk­ur ró­leg­heit inn á nú­tíma heim­ilið. Hvít­ur lit­ur er kannski meira ögr­andi en marg­ur myndi halda, í það minnsta í vali á blönd­un­ar­tækj­um.

Kop­ar
Sæk­ist þú eft­ir hlýju inn í rýmið, þá er kop­ar-krani málið. Kop­ar­inn get­ur híft upp lát­lausa inn­rétt­ingu eða verið djarft mót­spil við aðra liti.

Svart og seiðandi
Svart­ur krani er án efa stíl­hreinn og full­kom­inn ef þú sæk­ist eft­ir hrein­um lín­um. Hægt er að fá svarta krana með mattri og glans­andi áferð fyr­ir þá sem það vilja.

mbl.is/​Bill­i­g­vvs.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert