Smjörboxið sem matgæðingar elska

Marmarasmjörbox sem þú vilt skoða nánar.
Marmarasmjörbox sem þú vilt skoða nánar. mbl.is/Hopsongrace.com

All­ir mat­gæðing­ar sem elska smjör, ættu ekki að láta þetta fram­hjá sér fara. Hér sjá­um við marm­ara­krukku sem geym­ir smjörið á eld­hús­bekkn­um á smekk­leg­an máta í allt að 30 daga.

Þessi krukka er ekki bara stáss á borði, því hún geym­ir smjörið ein­stak­lega vel og held­ur því fersku. Þú ein­fald­lega set­ur smjörið í bik­ar­inn sem er und­ir lok­inu sjálfu, hell­ir síðan ör­litlu vatni í krukkk­una og set­ur lokð aft­ur á - en skipta þarf um vatn á 3-5 daga fresti. Marmar­inn býr yfir þeim eig­in­leik­um að halda smjör­inu svölu, en þessi geymsluaðferð á smjöri hef­ur verið ráðandi í Frakklandi áður en fyrstu ís­skáp­arn­ir litu dags­ins ljós. Fyr­ir áhuga­sama þá má finna smjörkrukk­una HÉR.

mbl.is/​Hop­songrace.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert