Loksins aðferð til að meta avókadó

Avokadó er lítill og krumpaður ávöxtur - og alveg einstaklega …
Avokadó er lítill og krumpaður ávöxtur - og alveg einstaklega góður. mbl.is/iStock

Hér kynn­um við nýja aðferð til leiks, hvernig best sé að meta hvort okk­ar ást­sæli ávöxt­ur avóka­dó sé til­bú­inn fyr­ir okk­ur ofan á brauð  eður ei.

Avóka­dó er dá­sam­legt á svo marga vegu, en get­ur reynst okk­ur erfitt hvað varðar þroska. Oft­ar en ekki er það of hart og óþroskað og hina stund­ina er það orðið dökkt og óætt. Það kann­ast all­ar avóka­dó-ætur við það að pota í ávöxt­inn til að meta hvort hann sé til­bú­inn fyr­ir upp­skurð og sett­ur á disk­inn. En hér er aðferð sem er mun ein­fald­ari í fram­kvæmd og seg­ir til um ágæti ávaxt­ar­ins með vissu. Það er lít­ill stilk­ur efst á hon­um sem þú get­ur létti­lega tekið af og kannað málið. Ef þú sérð glitta í grænt, þá er ávöxt­ur­inn til­bú­inn  en sé hann brúnn und­ir stilkn­um er hann ekki til­bú­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert